Papaya- og rækjusalat
1 salathöfuð
½ hvítkálshöfuð
2 papayaávextir
2 tómatar
300 g rækjur
½ dl smátt saxaðar salthnetur
safi úr 3 lime ávöxtum
1 grænn, smátt saxaður chílipipar
2 msk. fiskisósa (Nam Pla)
2 msk. sykur
½ tsk. cayennepipar
1 saxaður blaðlaukur
Skolið salatnblöðin og raðið þeim á djúpt fat. Rífið hvítkálið fínt á rifjárni. Afhýðið papayaávextina, fjarlægið kjarnann og skerið ávaxtakjötið í sneiðar. Saxið tómatana og blandið þeim saman við papayasneiðarnar og hvítkálið. Blandið rækjunum út í og setjið salatið yfir salatblöðin á fatinu. Stráið söxuðum salthnetum og chílipipar yfir salatið. Þeytið saman í sósuhristara, limesafann, fiskisósuna, sykurinn, piparinn og blaðlaukinn. Hellið blöndunni yfir salatið og geymið í kæli fram að framreiðslu.