Palestínskt lauksalat
2 stórir laukar (gjarna 1 rauðlaukur, 1
venjulegur)
4-5 tómatar
2 msk ólífuolía
1 msk súmak (má sleppa)
safi úr 1/2 sítrónu
nýmalaður pipar
salt
300 ml kjúklingasoð, sjóðheitt
1/2 knippi steinselja, saxað smátt
Laukurinn saxaður smátt og settur í skál.
Tómatarnir helmingaðir,
fræhreinsaðir, saxaðir smátt og settir í skálina. Olíu, súmaki, sítrónusafa,
pipar og salti dreift yfir og blandað vel. Sjóðandi kjúklingasoði hellt
yfir, blandað og látið standa í a.m.k. 20 mínútur. Steinseljunni hrært saman
við og borið fram.