Kjúklingasalat með sætri thai-sósu

Hráefni:
400 g kjúklingur - bringur
*1/2 dl þurrt sérrí
*1/2 dl sojasósa
*4 tsk. engiferrót (fersk rifin)
*3 hvítlauksgeirar, saxaðir
#1/2 dl hoisin-sósa
#2 msk. púðursykur
#2 msk. hvítvínsedik
#1 msk. ólífuolía
1 tsk. sesamolía
4 litlir rauðlaukar
1 salatpoki
Grænmeti/ávextir að eigin vali t.d. melóna, jarðarber, tómatar, ristaðar furuhnetur og ristuð sesamfræ.

Aðferð:
Öllu hráefni sem merkt er með * er blandað saman - 1/2 dl af leginum tekinn frá og geymdur. Kjötið er skorið niður og látið marinerast í leginum sem merktur er með stjörnu í að minnsta kosti eina klukkustund og síðan þerrað. Kjötið er steikt í um það bil 10-12 mínútur. 1/2 dl af marineringunni sem var geymd auk hráefnisins sem merkt er með # er hitað að suðu. Síðan er það tekið af hitanum og sesamolíu bætt út í. Ávextir/grænmeti er sett í skál eða fat. Kjötinu er raðað ásamt lauknum ofan á. Sesamfræjum er stráð yfir ásamt sósu. Gott er að bera smá sósu fram sér. Hægt að bera fram með góðu brauði en eða  bara og sér!