Ljúffengt grískt salat fyrir 2
1 agúrka
2 stórir tómatar
1 stór rauðlaukur
200 gr fetaostur
10 ólífur (eða fleiri eftir smekk)
Þurrkað óreganó (má sleppa)
Sjávarsalt
Ferskur svartur pipar
Góð ólífuolía
Hvítvínsedik.
Afhýðið gúrkuna, skerið hana langsum og síðan í þykka ferninga. Skerið kjarnann úr tómötunum og skerið þá í þykka bita. Afhýðið rauðlaukinn og skerið niður. Skerið fetaostinn niður í stóra ferninga. Setjið grænmetið í fallega skál ásamt fetaostinum og ólífunum. Hafið sjávarsalt, pipar, góða ólífuolíu og hvítvínsedik á borðinu svo fólk geti fengið sér, ef það vill. Berið salatið fram með ljúffengu brauði.