Grænt salat
2 stk sólþurrkaðir tómatar, mjög smátt saxaðir
1 stk eikarlaufssalat frá Lambhaga
1 stk íslenskt íssalat frá Lambhaga
1 msk kapers
1 tsk ólífuolía
1 msk sítrónusafi
¼ stk graslauksbúnt eða 1 vorlaukur
Rífið salatið niður í skál og klippið graslauk út á. Bætið kapers og sólþurkkuðum tómörum út í. Hrærið saman sítrónusafanum og ólífuolíunni og hellið yfir salatið.