Epla- og kotasælusalat
1 gult epli
1 rautt epli
1/4 lítið jöklasalathöfuð
1/2 sítróna
1 dós (200 g) kotasæla
1/4 tsk paprikuduft
kummin á hnífsoddi
nýmalaður pipar
salt
söxuð steinselja eða minta (má sleppa)
Eplin kjarnhreinsuð og e.t.v. afhýdd. Skorin í
bita og sett í skál og
jöklasalatið skorið í þunnar ræmur og sett saman við. Safi úr sítrónunni
kreistur yfir. Kotasæla, paprikudufta, kummin, pipar og salt hrært saman og
síðan blandað saman við salatið. E.t.v. skreytt með söxuðum kryddjurtum.