Engifergulrætur
300 g gulrætur
salt
1 msk smjör
2 msk engifer, saxaður smátt
1 msk sykur
nýmalaður pipar
Gulræturnar afhýddar eða skafnar, skornar í
þunnar ræmur og hver ræma síðan
í mjóa stafi. Saltvatn hitað í potti, gulræturnar settar út í og soðnar í um
5 mínútur. Hellt í sigti og látið renna snöggt af þeim og síðan er sigtinu
skellt ofan í skál með ísköldu vatni andartak. Smjör, engifer og sykur sett
í pottinn ásamt dálitlum pipar. Gulrótunum hrært saman við og hrært þar til
þær eru þaktar blöndunni. Þá er lok sett á pottinn og gulræturnar látnar
krauma við vægan hita í 2-3 mínútur í viðbót, áður en þær eru bornar fram.