Saltfiskpizza

400 g saltfiskur, útvatnaður
2 stk laukur
5 skt hvítlauksgeirar
3 dl pizzasósa
300 g ostur
3 dl sætt sinnep

Pizzadeig

1 tsk perluger
1 tsk sykur
1 bolli volgt vant
3 bollar hveiti
1 tsk salt
1 msk ólífuolía

Byrjið á að útbúa pizzadeigið. Setjið perluger í litla skál ásamt sykri og 1/4 bolla af fingurvolgu vatni og leysið gerið upp. Setjið hveiti á borð, gerið holu í miðjuna og hellið perlugersvökvanum í holuna ásamt salti og olíu. Hnoðið saman og bætið restinni af vatninu út í eftir þörfum. Setjið deigið í skál, breiðið rakan klút yfir og látið hefast þar til stærð þess hefur tvöfaldast.
Á meðan deigið er að lyfta sér skerið þið saltfiskinn í strimla, afhýðið lauk og hvítlauk og saxið. Fletjið deigið út og smyrjið pizzasósunni á botninn. Stráið helmingnum af ostinum, hvítlauk og lauk yfir. Raðið því næst saltfiskstrimlunum á pizzuna, sprautið sætu sinnepi jafnt yfir og dreifið að lokum restinni af ostinum yfir . Bakið i 15-20 mín. vi´ð 200°C.