2 ½ dl vatn
30 gr pressuger eða
1 msk þurrger
2 msk matarolía
6 dl hveiti
1 tsk salt
Ef notað er pressuger er það hrært út í volgu vatni (37°C) eða stráið þurrgerinu yfir vökvann og látið bíða í nokkrar mín. Hrærið matarolíu, hveiti og salti saman við og hnoðið deigið þar til það er sprungulaust og gljáandi. Fletjið deigið út á bökunarplötu í eina stóra eða átta litlar kökur, jafnið tómatsósunni yfir og setjið fyllingu á ásamt osti. Látið pizzuna lyfta sér í 10-15 mín, bakið við 200°C í 15-20 mín.
Tómatsósa á pizzur:
1 lítil dós tómatpurre
1 msk oregano
1 msk timian
1 msk basil
1 msk merjam
1 tsk sykur
2-3 msk vatn
Allt sett í pott og hitað, kælið aðeins áður en smurt er á pizzuna.
Fylling á pizzur: 1
200 gr skinka skorin í bita Smyrjið tómatsósunni á pizzuna setið síðan
200 gr ananasbitar skinkukurlið, ananasinn og aspasinn yfir
½ ds aspas og að lokum ostinn.
3-400 gr rifinn ostur
Fylling á pizzur: 2
400 gr hakkað nautakjöt Steikið hakkið og brúnið laukinn í olíunni.
2-3 laukar Kryddið með salti og pipar saxið laukinn
200 gr speppir steikið með. Jafnið fyllingunni á pizzuna
1-2 paprikur setjið papriku og sveppi yfir ásamt osti.
3 msk matarolía
2-300 gr rifinn ostur
Fylling á pizzur: 3
200 gr pepperoni Smyrjið tómatsósunni á pizzuna og jafnið
200 gr sveppir fyllingunni yfir stráið ostinum yfir í lokin.
1-2 paprikur
10-12 ólífur
sólþurrkaðir tómatar
2-300 gr rifinn ostur