Pizza með Delfí, rauðlauk og möndluflögum
1 skammtur pizzadeig, fæst tilbúið í verslunum
2 dl tómatpestó
50 g gráðostur
1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
100 g Delfí rjómaostur
2 handfylli af klettasalati
5-6 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
1 dl möndluflögur
hveiti
Hitið ofninn í 180°C. Stráið hveiti á bökunarplötu og fletjið pizzadeigið út á plötuna. Reynið að ná botninum sem þynnstum. Smyrjið botninn með tómatpestói, stráið gráðosti yfir og bakið í 10 mínútur. takið botninn út úr ofninum og raðið klettasalati, rauðlauk og tómötum á hann. Dreifið klípu af Delfí osti jafnt á pizzuna og stráið loks möndluflögum yfir allt. Setjið botninn aftur í ofninn og bakið í 10 mínútur.