Pizza með balsamkjúklingi


1 Wewalka pizzudeig
2 kjúklingabringur, skornar í litla bita
2 msk. balsamedik 1 rauðlaukur
1 msk. ólífuolía + auka til að setja á pizzuna í lokin
sólþurrkaðir tómatar (sundried tomatos) frá Scala eða pizzusósa frá Hunt's
1 kúla mosarella ostur, skorin í þunnar sneiðar
1 búnt ferskt koriander til að skreyta í lokin


Setjið kjúklingabitana í skál með 1 msk. af balsamediki og látið marinerast í 10 mín. Steikið síðan bitana ásamt rauðlauknum í ólífuolíu og bætið við matskeið af balsamediki á pönnuna og fullsteikið.

Setjið pizzudeigið á bökunarplötuna smyrjið sólþurrkaða tómatmaukinu yfir. Dreifið því næst kjúklingabitunum og lauknum yfir ásamt soðinu af pönnunni, Dreifið ostinum yfir og bakið skv. leiðbeiningum. Dreifið kórinaderlaufum yfir pizzuna áður en hún er borinn fram.

 

Pizzadeig