Pitsa með fetaosti og klettasalati
deig í
1 pitsubotn
vænt knippi af klettasalati
1 þykk sneið af góðu brauði, dagsgömlu (bakarísbrauð eða heimabakað, ekki
verksmiðjubrauð)
2-3 msk ferskt timjan, saxað
100 g fetaostur í kryddlegi
75 g svartar ólífur, með eða án steina
1 þurrkað chilialdin, fínmulið
nýmalaður pipar
salt
1 kúla ferskur mozzarellaostur
1/4 sítróna
1 msk ólífuolía
Pitsudeigið búið til á venjulegan hátt, látið lyfta sér og síðan slegið
niður og flatt út. Ofninn hitaður í 240 gráður. Salatið þvegið og síðan
látið renna vel af því á eldhúspappír eða viskastykki. Brauðið sett í
matvinnsluvél eða blandara og vélin látin ganga þar til það er orðið að
mylsnu og timjanið saxað saman við. Fetaosturinn mulinn og blandað saman við
ásamt ólífum, chili, pipar og e.t.v. salti, en rétt er að hafa í huga að
osturinn er saltur og ólífurnar líklega einnig. Mozzarellaosturinn skorinn í
teninga og dreift yfir, 1-2 msk af kryddolíunni af ostinum ýrt yfir og síðan
er pitsan sett í ofninn og bökuð í um 8 mínútur, eða þar til osturinn er
bráðinn og kantarnir hafa tekið góðan lit. Á meðan er safinn kreistur úr
sítrónunni, hristur saman við ólífuolíuna og kryddað með svolitlu pipar og
salti. Klettasalatinu velt upp úr leginum og um leið og pitsan er bökuð er
salatblöðunum dreift yfir hana. Látið bíða í 1 mínútu og síðan borið fram.