Pestópitsa með skinku og ólífum
1/2
skammtur pitsudeig
2-3 msk rauð pestósósa
6-8 sneiðar af hráskinku
10-12 ólífur, gjarna ansjósufylltar
nokkrir bitar af Höfðingja-osti (má sleppa)
1 kúla ferskur mozzarellaostur, skorinn í sneiðar
1/4 tsk oregano
nokkur blöð af ferskri basilíku
smáknippi af klettasalati (má sleppa)
Pitsudeigið búið til og látið lyfta sér en síðan slegið niður og flatt út í
hring eða ferhyrning, um 25 cm á kant (engar athugasemdir um geómetrískan
þekkingarskort minn, takk. Þið skiljið alveg hvað ég er að meina). Ofninn
hitaður í 250 gráður. Pitsudeigið smurt með pestósósunni og svo er
skinkusneiðum raðað á það og ólífum, Höfðingja og mozzarellasneiðum dreift
yfir. Oregano stráð yfir og nokkur basilíkublöð rifin niður og dreift yfir
pitsuna. Látin lyfta sér á meðan ofninn hitnar. Bökuð í miðjum ofni í 10
mínútur, eða þar til kantarnir hafa lyft sér vel og tekið góðan lit.
Klettasalati stráð yfir um leið og pitsan er tekin úr ofninum.