Létt og góð pizza
Ólívuolía
1-2 hvítlauksrif
söxuð steinselja
salt og pipar
Blandað saman og smyrjið á útflatt deigið. Sett inn í ofn.
3-4 tómatar 1 kúla mozzarella-ostur
1 msk. basilpestó
½ msk. ólívuolía
klettasalat
svartur pipar
Tómatarnir eru saxaðir í litla munnbita. Osturinn rifinn niður í smáa bita,
pestói og ólívuolíu blandað saman. Þegar pitsan er tekin úr ofninum er tómötunum
dreift yfir, síðan mozzarella-ostinum. Pestóinu er slett létt yfir og síðan
klettasalatið sett ofan á. Að lokum er pitsan pipruð örlítið.
