Humarpizza
Hráefni:
Pitsubotn að eigin vali (ég mæli með fersku pitsudeigi sem hægt er að rúlla út
og fæst meðal annars í Nettó)
500 g skelflettur humar
200 g ostur að eigin vali (gott að nota pitsuost)
1 hvítlaukur
1 dl olía
svartur pipar
Aðferð:
Búið fyrst til hvítlauksolíu. Saxið meðalstóran hvítlauk niður með
töfrasprota og hrærið saman við olíu. Rúllið pitsubotninn út og látið standa
meðan humar er steiktur á pönnu upp úr örlítilli hvítlauksolíu og svörtum pipar.
Þegar humar er orðinn örlítið gylltur er hann tilbúinn. Smyrjið þá pitsubotn með
þunnu lagi af hvítlauksolíu og dreifið humri yfir. Dreifið osti næst jafnt yfir.
Skellið pitsunni inn í 220 gráðu heitan ofn. Hún ætti að vera tilbúin eftir tíu
til fimmtán mínútur eða þegar osturinn er orðin brúnleitur og girnilegur. Berið
fram með salati að eigin vali og fetaosti