Grænmetispizza (Fyrir 10 manns)

 

Deig:
500 g heilhveiti
500 g semolinamjöl
2 tsk salt
20 g þurrger
2 msk olía
650 ml volgt vatn

 

Aðferð:
Hnoðið saman í hrærivél í tvær mínútur og látið hefast í um það bil 20 mínútur.

 

Tómatbasilsósa:
2-3 hvítlauksrif
400 g tómatar í dós
2 msk tómatpurre
½ bolli ferskt basil
salt og pipar

 

Aðferð:
Maukið allt saman í matvinnsluvél og smakkið til með salti og pipar

 

Álegg á pitsuna:
4 rauðir laukar í sneiðum
3 rauðar og grænar paprikur í sneiðum
1 st zucchini
10 vel þroskaðir tómatar í sneiðum
10-20 sveppir
2 bollar 17% ostur (rifinn)
Gráðostur eða fetaostur

 

Aðferð:
Fletjið deigið út og smyrjið með sósunni. Stráið næst helmingnum af ostinum yfir. Raðið öllu álegginu á pitsuna ásamt afganginum af ostinum í lokin. Bakið síðan pitsuna við 230°C í 10-15 mín. Stráið grófsöxuðu klettasalti yfir pitsuna þegar hún hefur verið bökuð. Berið fram með hvítlauksolíu og ferskum parmegano osti