Tortellini með ricotta- og gráðosti
fyrir 8

Ferst pasta

Fylling
250 g ricottaostur
250 g gráðostur, rifinn
4 stórar eggjarauður eða 5 litlar
6 msk nýrifinn grana- eða parmesanostur
salt, nýmalaður pipar og nýrifið múskat

sósa
1 kg vel þroskaðir tómatar eða niðursoðnir
salt, nýmalaður svartur pipar
120 g smjör
8 msk nýrifinn grana- eða parmesanostur

Setjið tómatana í pott og látið þá malla í 25-30 mínútur. Fersku tómatana þarf fyrst að skera í bita.
Þrýstið tómatblöndunni gegnum sigti eða setjið í blandara og sjóðið síðan í 5 mínútur. Takið pottinn af hellunni og bætið helmingnum af smjörinu út í.
Setjið lokið á og látið blönduna bíða. Útbúið fyllinguna með því að hræra saman ricotta- og gráðosti. Hrærið síðan eggjarauðunum og granaosti eða parmesanosti saman við.
Skerið pastað í litla hringlaga kökur, 6-7 cm í þvermál. Setjið ostafyllinguna á miðju hverrar köku, leggið þær saman og þrýstið brúnunum saman með gaffli.
Ef pastað hefur þornað getur þurft að bleyta brúnirnar með vatni. Sjóðið pastað nú í 3-4 mínútur í léttsöltu vanti.
Setjið á disk og hellið heitri tómatsósunni yfir. Setjið smjörið sem eftir er yfir í litlum bitum. Stráið granaostinum (eða parmesanostinum) yfir eða setjið hann í skál og berið hann fram með.