500 gr spaghetti
5 stk egg
1 dl rjómi
salt og svartur pipar úr kvörn
1-2 msk olífuolía
25 gr smjör
200 gr beikon skorið í teninga
100 gr parmeseanostur
Þeytið egg og rjóma saman ásamt ögn af salti.
Hitið smjör og olíu í stórum potti.
Setjið beikonið út í pottinn og látið malla við vægan hita þar til fitan er
orðin glær.
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum,
látið renna af því og setjið í pottinn með beikoninu hrærið vel saman,
takið pottinn af hitanum og hrærið eggjablöndunni saman við ásamt dálitlu af
ostinum.
Eggin hlaupa við hitann af pastanu svo að það þarf að vera handfljótur.
Hrærið þar til hver ræma af pastanu er þakin þykkri gulri sósu.
Bætið nú afganginum af ostinum saman við og piprið eftir smekk.