Lasagne Verdi

 

2 msk ólífuolía

50 gr beikon án pöru skorið í litla bita

1 laukur saxaður

1 hvítlauksgeiri saxaður

1 leggur sellerí í litlum bitum

1 gulrót í litlum teningum

200 gr sveppir skornir í sneiðar

2-3 stórir þroskaðir tómatar afhýddir og kjarnaðir

(eða tómatar úr dós)

200 gr nautahakk

1 dl kjötkraftur (blandaður)

½ dl rauðvín

1 msk tómatpurre

salt, nýmulinn svartur pipar

örlítill sykur

1 tsk oregano

2 leggir söxuð steinselja

(gott að nota ítalska-kryddblöndu)

 

Mjólkursósa:

65 gr smjör

65 gr hveiti

2 ½-3 dl heit mjólk

örlítið múskat

salt og pipar

300 gr rifinn ostur

 

2-3 glös pasta- skrúfur eða slaufur

 

Olían er hituð í potti, beikonið brúnað í henni, lauknum og hvítlauknum bætt saman við og brúnað þar til laukurinn verður glær. Þá er sveppunum, gulrótunum og selleríinu bætt saman við og því næst kjötinu, gætið þess að merja það vel í sundur. Bætið vökvanum saman við ásamt tómötum og tómatpurre og kryddið. Hrærið vel saman og látið malla við vægan hita í 30 mín. Á meðan er mjólkursósan löguð. Og pastað soðið í 5 mín og skolað úr köldu vatni. Smyrjið eldfast mót setjið pastað í botninn því næst hakkblöndu, hellið mjólkursósunni yfir og stráið rifna ostinum yfir. Bakið í 20-30 mín við 200°C. Berið fram með brauði og grófu salati.

ATH. Það má líka nota lasagneblöð og setja hakkblöndu og mjólkursósu í lögum á milli lagsagneblaða.