Torrelini

1 poki torrelini, past með kjötfyllingu
200 gr sveppir
2 stk paprika
1 dós ananas
200 gr skinka
1 stk púrrulaukur
2 stk piparostur

Pasta soðið eftir leiðbeiningum á pakka. Sveppir, paprika, ananas, púrrulaukur og skinka steikt á pönnu. Piparosturinn bræddur í stórum potti og rjóma bætt saman við, þegar sósan er til er öllu blandað saman og borið fram.