Tex-Mex-lasagne
2 msk olía
400 g nautahakk
4 tómatar, saxaðir
1 chilialdin, fræhreinsað og saxað smátt
200 ml tacosósa, styrkleiki eftir smekk
1/2 tsk timjan
nýmalaður pipar
salt
200 g rjómaostur, mjúkur
2 egg
1 tsk oregano
4 hveititortillur
100 g cheddarostur, rifinn
Ofninn hitaður í 180 gráður. 1 msk af olíu
hituð á pönnu og hakkið brúnað í
henni. Söxuðu chili og tómötum bætt út í og látið krauma í 3-4 mínútur og
síðan er tacosósunni hrært saman við ásamt timjani, pipar og salti. Látið
malla í nokkrar mínútur. Á meðan er rjómaosturinn hrærður með eggjum og
oregano. Kringlótt, eldfast fat penslað með 1 msk af olíu, tortilla lögð í
botninn og þriðjungi af hakkinu hellt yfir. Fjórðungi af sósunni dreypt þar
yfir og önnur tortilla lögð ofan á. Endurtekið tvívegis og síðan er
afganginum af sósunni jafnað yfir efstu tortilluna. Sett í ofninn og bakað í
um 20 mínútur. Þá er cheddarostinum dreift yfir og bakað áfram þar til hann
er alveg bráðinn. Lasagneið er svo borið fram með grænu salati og e.t.v.
brauði.