Tagliatelle með grillaðri papriku og avókadó pestó
Að hætti Rikku
fyrir 4

2 rauðar paprikur
2 msk Ítalía ólífuolía
1 msk balsamsíróp
1 1/2 hvítlauksrif, kreist
200 g spínat
100 g sveppir
2 msk sítrónusafi
400 g tagliatelle

Hitið ofninn í 200°C. Skerið paprikurnar í sneiðar og raðið á pappírsklædda ofnplötu. Hellið ólífuolíunni og balsamsírópinu yfir og bakið í 15 mínútur. Steikið hvítlaukinn, spínatið og sveppina upp úr smá olíu. Kreistið sítrónusafann yfir og bætið paprikunni saman við. Sjóðið pastað í vatni með smá salti í, sigtið vatnið frá. Blandið pestóinu og grænmetinu saman við pastað og berið fram. Gott að rífa örlítinn parmesanost yfir.



Avókadó pestó
3 msk furuhnetur
150 g fersk basilíka
4 msk sítrónusafi
30 g parmesanostur
1 1/2 avókadó, grófsaxað
1 dl vatn
salt

Setjið furuhnetur, basilíku, sítrónusafa og parmesanost í matvinnsluvél og maukið vel saman. Bætið avókadóinu, vatninu og salti út í og vinnið saman gróflega.