Steiktar eggjanúðlur
300 g eggjanúðlur
1 egg
2 msk matarolía
50 g hvítlaukur, saxaður
300 g kjúklingur
2 bollar vatn
1 msk salt
1 msk sykur
200 g blaðlaukur
100 g gulrætur
100 g laukur
Núðlurnar eru settar í volgt vatn í 5 mínútur. Matarolía er hituð á pönnu og
hvítlaukur síðan steiktur þar til hann tekur á sig gulan lit. Kjúklingur og egg
er því næst steikt á pönnunni. Vatni, salti og sykri bætt saman við. Núðlurnar
eru þá settar saman við og steiktar í 5 mínútur. Grænmetið er að lokum sett á
pönnuna og steikt í 2 mínútur til viðbótar.