Speltspaghettí og bollur með sólþurrkuðu tómatamauki, tómatsósu og pestói
Veljið speltspaghettí frá Himneskri hollustu og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum.
Bollur með sólþurrkuðu tómatamauki
200 g soðnar kjúklingabaunir
200 G grænmetisblanda frá Himneskri hollustu
100 G sólþurrkaðir tómatar frá laSelva, maukaðir
100 G malaðar kasjúhnetur
1 1/2 tsk karrí
1 tsk paproliduft
örlítið salt og nýmalaður pipar
handfylli af fersku kóríander
Hitið ofninn í 200°C. Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið í um 1/2 mínútu. Mótið litlar bollur og bakið þær í 10 mínútur.
Tómatsósa
1/2 krukka Sala Pronta (sykurlaus hágæðatómatsósa frá LaSelva)
1/2 krukka Salsa Al Capperi frá LaSelva
Setjið í pott og hitið.
Pestó
1/2 poki klettasalat frá Himneskri hollustu
1/2 - 1 dl lífræn ólífuolía, t.d. frá LaSelva
safi úr 1/2 sítrónu
2 hvítlauksrif, pressuð
1/2 tsk salt
1 dl furuhnetur
Leggið furuhneturnar í bleyti í kalt vatn í 15-20 mínútur. Setjið salat, olíu, límónusafa, hvítlauk og salt í matvinnsluvél og maukið. Bætið furuhnetunum við og maukið áfram þar til pestóið er tilbúið.