Spaghettí að hætti gleðikonunnar

300 g spaghettí
salt
3 msk ólífuolía
50 g smjör
2 hvítlauksgeirar fínsaxaðir
5-6 ansjósuflök, marin
smábiti af ferskum chilipipar, fínsaxaður
1 dós tómatar, saxaðir
1 msk kapers
100 g svartar, steinlausar ólífur, skornar í fremur þunnar sneiðar
1 msk söxuð steinselja

Spaghettíið soðið í saltvatni. Á meðan er olían, smjörið, hvítlaukurinn, ansjósurnar og chilipiparinn sett á heita pönnu og steikt í eina mínútu. Tómatar, kapers og ólífur sett út í og soðið í 5 mínútur. Hrært oft í. Vatninu hellt af spaghettíinu og það sett á pönnuna ásamt steinseljunni. Soðið í eina mínútu og hrært stöðugt í. Borið fram strax.