Pastasalat með rækjum og sólþurrkuðu grænmeti
250 g farfalle (slaufur)
salt
1 krukka blandað sólþurrkað grænmeti frá Svansö (má nota aðrar tegundir, en
þetta var á útsölu í 10-11)
2 msk pestósósa
200 g rækjur
12-16 grænar ólífur, steinlausar, saxaðar
nýmalaður pipar
2-3 msk basilíkublöð, söxuð
Pastað soðið í saltvatni þar til það er rétt
meyrt en þá er því hellt í
sigti og látið renna vel af því, og síðan hvolft í skál. Grænmetinu og
olíunni af því hellt yfir, pestósósu bætt út í og blandað vel (e.t.v. best
að skera sólþurrkuðu tómatana í grænmetisblöndunni í 2-3 bita hvern fyrst).
Látið kólna áður en rækjum og ólífum er bætt út í og blandað. Kryddað með
dálitlum nýmöluðum pipar. Basilíkunni stráð yfir.