Pasta með spergilkáli og kjúklingabaunum

4 msk. ólífuolía
1 msk. saxaður hvítlaukur
2 dl þurrt hvítvín
1 dós kjúklingabaunir
400 g pasta t.d. penne eða fiðrildi
3 bollar spergilkál í bitum
1 dl ferskur parmigiano ostur
salt og chilipipar eftir smekk

Hitið olíuna á pönnu og látið hvítlaukinn krauma í henni í 1 mínútu við frekar lítinn hita. Hellið víninu yfir og bætið kjúklingabaununum saman við. Látið krauma í 5 mínútur eða þar til vökvinn hefur minnkað og blandan fer að þykkna. Sjóðið pastað í u.þ.b. 8 mínútur. Bætið spergilkálinu út í pastavatnið og sjóðið áfram í 5-7 mínútur. Blandið pasta- og spergilkálsblöndunni út í hvítlaukssoðið og stráið parmigiano osti yfir. Kryddið eftir smekk með salti og chilipipar. Berið fram með ítölsku brauði.