Pasta með beikoni og grilluðu grænmeti
3 msk ólífuolía
150-200 g magurt beikon
350 g tómatar, vel þroskaðir
2 paprikur, t.d. gul og rauðgul
3-4 hvítlauksgeirar
1/2 tsk oregano
nýmalaður pipar
400 g tagliatelle
hnefafylli af basilíkublöðum
Grillið í ofninum hitað og ofnskúffa klædd
innan með álpappír.
Beikonsneiðunum raðað í hana. Tómatarnir skornir í fjórðunga og paprikurnar
helmingaðar, fræhreinsaðar og hvor helmingur síðan skorinn í nokkra báta.
Hvítlauksgeirarnir afhýddir og kramdir með hnífsblaði. Tómötunum dreift yfir
beikonið með skurðfletina upp. Paprikubitum dreift á milli með hýðið upp og
hvítlauksgeirunum dreift yfir ásamt oregano og pipar. Sett í ofninn, nálægt
grillristinni, og grillað þar til beikonið er stökkt og grænmetið farið að
dökkna. Á meðan er pastað soðið í saltvatni samkvæmt leiðbeiningum á
umbúðum. Hellt í sigti og látið renna vel af því en síðan hvolft í skál og
afganginum af ólífuolíunni hellt yfir. Basilíkublöðin rifin og blandað saman
við. Þegar beikonið og grænmetið er tilbúið er því hellt yfir pastað,
blandað lauslega og borið fram, gjarna með nýrifnum parmigiano-osti.