OSTFYLLT TORTELLINI MEÐ TÚNFISKSÓSU


1 pk tortellini m/osti
1 blaðlaukur
1 hvítlauksrif
ólífuolía
1 lítil ds tómatkraftur
100 g rjómaostur (6 msk)
1/2 dl mjólk
200 g túnfiskur í dós (0ra)
150 g rækjur
salt og pipar og basillika til skrauts

Sjóða tortellini skv leiðbeiningum á pakka
skera blaðlauk í strimla, merja hvítlaukinn og mýkja í olíunni á pönnu
Bæta tómatkrafti við, rjómaosti og mjólk, hrærið vel, hitið vel. Kryddið með salti og pipar.
Látið vökvann renna af túnfiskinum, og bætið út í sósuna ásamt rækjunum. Setjið tortellini á disk, hellið sósunni yfir og skreytið með fersku basilikum. Berið fram með brauði.