300 gr makkarónupasta
300 gr tómatar
1 stk laukur saxaður
1-2 stk hvítlauksgeirar
200 gr skinka skorin í teninga
2 msk smjör
½ búnt steinselja söxuð
salt og pipar
3 stk egg
2 ½ dl mjólk
2 msk brauðrasp
100 gr rifinn ostur
Sjóðið makkarónurnar í léttsöltu vatni í 10-15 mín.
Afhýðið tómatana og fjarlægið kjarnann.
Bræðið smjörið á pönnu, hitið laukinn í smjörinu,
þá hvítlaukinn, síðan skinkuna,
þá tómatkjötið og í lokin steinseljuna.
Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk.
Setjið blönduna í velsmurt eldfast fat,
hellið vatninu frá makkarónunum og hellið þeim yfir.
Blandið saman eggjum, mjólk og raspi, hellið þessu yfir makkarónurnar,
stráið rifna ostinum yfir og bakið í 30 mín við 220°C.
Berið fram heitt með grófu salati.