Lasagne með kotasælu

 

12 stk lasagneplötur

3 stk laukur saxaður

2 stk hvítlauksgeirar pressaðir eða fínsaxaðir

1 msk matarolía

500 gr dósatómatar

½ dl tómatmauk

salt, pipar, oregano, timian, basilkum.

3-400 gr kotasæla

100 gr rifin ostur

Kraumið lauk og hvítlauk í olíunni smá stund.
Bætið tómötum og tómatmauki saman við og kryddið hæfilega, sjóðið í 10 mín.
Takið af hitanum og hrærið kotasælunni saman við.
Leggið lasagneplöturnar og sósu í lögum í eldfast mót. Stráið osti yfir hvert lag.
ATH. Lagsangeplöturnar eiga að vera neðstar síðan þykkt lag af sósu með rifnum osti.
Bakið í 20-25 mín við 200-225°C.