Heitt núðlusalat með rækjum og cashew hnetum
Frábær núðluréttur sem er virkilega þess virði að spreyta sig á og matreiðslan ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Engifer og chillipiparflögurnar setja svo punktinn yfir i-ið.
 

250 g rækjur (frosnar)
2 dl vatn
1 dl sojasósa (létt)
1 dl nýmjólk
3 msk Canola olía
2 msk sesamolía
1 msk ferskt engifer (rifið)
10 stk sveppir, ferskir
2 tsk chillipipar flögur
3 stk egg
3 stk hvítlauksrif
1 stk kúrbítur
1 stk púrrulaukur
½ stk fiskiteningur
cashew hnetur
núðlur (1 pakki, soðnar skv. leiðbeiningum)

Aðferð
Hitið olíuna á pönnu og bætið söxuðum púrrulauk saman við. Setjið því næst hvítlauk, engifer og chilliflögur og steikið létt. Bætið þá sveppunum við og haldið áfram að steikja í 2 -3 mín. Skerið kúrbítinn í litla bita og bæðið honum saman við og því næst fiskiteningi, vatni og sojasósu. Blandið vel saman og setjið svo frosnu rækjurnar útí, slökkvið undir pönnunni og setjið lok yfir.
Blandið þá saman eggjum og mjólk og búið til 3 þunnar eggjakökur.
Setjið soðnar núðlurnar í stóra skál og hellið öllu af pönnunni yfir. Skerið eggjakökurnar í litlar ræmur og blandið saman við. Ristið cashew hneturnar á þurri pönnu og stráið þeim yfir.