Heimalagað fyllt pasta
Pasta (ravioli)
3 egg
2 eggjahvítur
salt
um 350 g af hvítu hveiti
Fylling
½ lítill laukur saxaður
150 g ferskir ítalskir Porcini-sveppir eða 30 g þurrkaðir
125 g ferskur mozzarellaostur
salt og svartur pipar
50 g parmesanostur
Dressing
3 msk. jómfrúarolía
örlítið af blóðbergi (tímían)
1 hvítlauksrif
150 g kirsuberjatómatar
Sósa
50 g ferskt klettasalat (rucola)
15 g furuhnetur
3 msk. jómfrúarolía
50 g parmesanostur
Sláið eggjunum saman við eggjahvíturnar og vinnið hveitið og saltið saman við.
Rúllið deiginu í litla bolta og látið standa og setjið rakan klút yfir í um 30
mínútur. Setjið snyrta sveppina, skorinn laukinn, brytjaðan mozzarella og
parmesanostinn á pönnu og saltið og piprið og setjið svo allt saman í
matvinnsluvél eða blandara. Fletjið deigið út í tvö þunn blöð og skerið í tólf
ferninga/hringi. Notið ½ msk. af fyllingu á hvern 5 cm ferning. Látið það í
sjóðandi saltað vatn og gætið þess að sjóða ekki of lengi. Takið pastað varlega
upp úr pottinum og leyfið því að þorna. Berið fram með sósunni og dressingunni