Glútenlausir partar

630 g glútenlaust hveiti

5 tsk. vínsteinslyftiduft

½ tsk. natron

½ tsk. hjartasalt

¼ - ½ bolli sykur

tæpur ½ lítri súrmjólk eða AB-mjólk

 

Blandið öllu saman í skál. Gott að láta bíða í 1-2 klst. áður en deigið er hnoðað og flatt úr. Skerið í parta (eins og kleinur), pikkið og steikið upp úr heitri feiti.

Glútenlausir partar