Einfalt túnfiskpasta

Það þarf hvorki að vera flókið né dýrt að útbúa ítalska veislu fyrir alla fjölskylduna. Pasta með túnfisk er létt í maga auk þess sem það tekur enga stund að matreiða.
Pastað er bakað í eftirfarandi uppskrift, en einnig er hægt að sleppa ostinum og bera það fram beint af pönnunni.

Bakað pasta með túnfiski og ólífum fyrir 4
350 g pastarör eða skrúfur
500 g pastasósa að eigin vali
400 g túnfiskur úr dós í vatni
125 g grænar eða svartar ólífur
100 g rifinn ostur
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum. Þerrið og setjið í eldfast mót. Þerrið túnfiskinn og blandið honum saman við pastasósuna, ólífurnar og svartan pipar á meðan pastað sýður. Hellið sósunni yfir pastað og stráið svo ostinum yfir. Bakið í 6-8 mínútur við 200° C eða þar til osturinn er orðinn gullbrúnn. Berið fram með fersku salati.