Easy breezy Ingó pasta
Fyrir 4
4 bollar ostafyllt tortellini (eða önnur tegund)
4 góðar kjúklingabringur
slatti af sveppum
1 stór laukur
4 stórir hvítlauksgeirar, eða meira
smá börkur af sítrónu
2-3 vænar slettur grænt basli pestó
2 hnefar pekan hnetur (eða hnetur að eigin vali)
ferskur parmesan ostur
salt og pipar
ólífuolía
Aðferð:
Grænmetið grófskorið og kjúklingurinn
skorinn í teninga. Pastað soðið.
Kjúklingurinn steiktur á pönnu með salti og pipar þar til hann er tilbúinn og
tekinn af.
Sveppirnir snöggsteiktir á pönnunni, hvítlauknum og lauknum bætt við, passað vel
að hvítlaukurinn
brenni ekki. Pastað sigtað og bætt aftur á pönnuna ásamt kjúklingnum, tekið af
hitanum. Pestóinu bætt út í
og sítrónubörkur rifinn yfir. Öllu blandað vel saman og kryddað með salti og
pipar.
Borið fram með ferskum parmesan, pekanhnetum, fersku salati og brauði, en fyrir
þá sem vilja minnka kolvetnisneyslu er
brauðinu sleppt.
Rétturinn er sérstaklega ljúffengur með köldu hvítvíni, til dæmis resling.