Basilíku- og tómatpasta
4-500 g spaghettí
1 búnt af ferskri basilíku
8-10 tómatar
3 góð, ný hvítlauksrif
1/2 - 3/4 dl góð jómfrúarolía
sléttfull matskeið af góðu sjávarsalti
nýmalaður svartur pipar
3/4 bolli mozzarella
Ef ekki er til mozzarella er í fínasta lagi að nota Gotta, skólaost eða annan brauðost. Tómatarnir eiga að vera vel þroskaðir, rauðir og mjúkir. Spaghettíið er soðið til al dente. Um leið og það er komið í pott er basilíkan söxuð út í, ólífuolíunni hellt yfir og saltinu dreift yfir. Þessu er blandað vel saman með sleif og látið standa. Tómatarnir eru skornir smátt niður og þeim hrært jafn óðum út í blönduna í skálinni. Svo er osturinn skorinn smátt og hrærður saman við. Þegar spagettíið er tilbúið er því hellt yfir og öllu blandað vel saman. Að síðustu er svartur pipar malaður yfir og blandað saman. Buon appetito!