Skyrterta
150 g heilhveitikex (t.d. Haustkex)
50 g smjör
150 g sykur, eða eftir smekk
4-6 matarlímsblöð
3 egg
500 g KEA vanilluskyr (eða annað skyr eftir smekk)
250 ml rjómi
1 pk. Toro ávaxtahlaup (eða annað hlaup), eða 350 ml jarðarberja-, apríkósu-
eða bláberjagrautur
Kexið mulið (t.d. í matvinnsluvél) og síðan er
smjörið brætt og hrært saman
við ásamt 2 msk af sykri. Sett í lausbotna form og þrýst niður á botninn og
dálítið upp með börmunum. Látið kólna. 4 matarlímsblöð lögð í bleyti í kalt
vatn í nokkrar mínútur og síðan tekin upp úr og brædd í 2-3 msk af rjómanum.
Á meðan eru eggin þeytt vel með afganginum af sykrinum og síðan er skyrinu
hrært saman við. Matarlíminu hellt út í í mjórri bunu og hrært vel á meðan
með sleikju (best að hræra frá botninum og upp, annars getur matarlímið sest
á botninn og storknað þar). Rjóminn stífþeyttur og blandað gætilega saman
við með sleikju. Sett í formið og látið standa í kæli í nokkrar
klukkustundir. Á meðan er hlaupið búið til samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum,
EÐA 2 matarlímshlaup í viðbót brædd og hrært saman við grautinn. Hálfstífu
hlaupinu/grautnum er svo hellt yfir skyrtertuna og látið standa í kæli,
helst til næsta dags. Þá er kakan losuð gætilega úr forminu.