Skyrostakaka

1 lítil dós vanilluskyr
1 peli rjómi
1 pakki kanilkex frá LU
1 dós kirsuberjasósa frá Gamle Fabrik
Væn klípa smjör (má sleppa)

Þeytið rjómann og hrærið honum saman við skyrið. Bræðið smjörið og myljið kexið (þægilegt að gera það í matvinnsluvél) og blandið smjörinu saman við mulninginn. Setjið kexmulninginn í botn á fati og skyrhræringinn þar ofan á. Veiðið kirsuberin upp úr kirsuberjasósukrukkunni og setjið ofan á skyrið. Með berjunum kemur alltaf næg sósa þannig að óþarfi er að hella sósunni ofan á kökuna. Setjið plastfilmu yfir fatið og geymið í ísskáp í nokkrar klukkustundir, jafnvel yfir nótt.