Skyndi-skyrkaka

1 smjördeigsbotn (fást í kössum eins og marensbotnar)
1 lítil dós vanilluskyr (skyr punktur is)
1 dós sýrður rjómi (18%)
2 msk hlynsíróp, eða eftir smekk
250 g jarðarber

Botninn settur á fat, skyr og sýrður rjómi hrært saman, bragðbætt með
hlynsírópi og jafnað í botninn, og berjunum dreift yfir. Tilbúið,
saumaklúbbnum reddað.