Piparkökur

2 1/2 dl sykur
225 gr smjörlíki
2 mat sýróp
1 egg
3 tsk kanill
3 tsk kardimommur (krydd)
2 tsk matarsódi
7 - 8 dl hveiti

Hitið ofninn í 200, hrærið saman smjörlíki og sykri, bætið eggi, sýrópi og kryddi út í og hrærið vel. Blandið hveitinu smátt og smátt út í. Þar sem degið á að vera blautt þarf kannski ekki allt hveitið. Látið bíða í eina klukkustund í kæli.