Peruterta

1 bolli brytjaðar valhnetur
1/3 bolli púðursykur
1 tsk kanill
1/4 bolli mjúkt smjör
1/3 bolli hveiti
2 perur
2 tsk sítrónusafi
1 3/4 bolli hveiti
3/4 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
1/2 mjúkt smjör
1 boli sykur
1 tsk vanilludropar
2 egg
1 bolli sýrður rjómi 10%

Púðursykri, valhnetum og kanil er blandað saman í skál. Í aðra skál á að setja 1/4 bolla mjúkt smjör og 1/3 bolla hveiti. Taka frá 3/4 bolla af kanilblöndunni og blanda því saman við hveiti blönduna þannig að þetta verði að kurli.
Verlið vel þroskaðar perur og skerið þær í sneiðar. Dreypið sítrónusafa yfir. Þeytið saman smjör og sykur og setjið eggin  út í eitt og eitt í einu. Síðan er vanilludropum og sýrðum rjóma bætt saman við.
Setja síðan hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt og blandið vel saman. Tveir þriðju af deiginu er sett í 24 cm smurt smelluform, Perunum er síðan raðar ofan á og restinni af kanilblöndunni strjáð yfir perurnar. Því næst er afganginum af deiginu smurt yfir perurnar. Hveitikurlinu stráð yfir deigið  og bakað í 50-60 mínútur við 175°c.
Látið kólna í 1 klst  og berið fram með þeyttum rjóma.