Panamabananakaka

5-6 litlir bananar, ofþroskaðir (svartir)
300 g sykur
2 msk smjör, lint
225 g hveiti
1 1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
50 g heslihnetuflögur (eða aðrar hnetur)
2 egg

Ofninn hitaður í 175 gráður. Bananarnir afhýddir, skornir í bita og
stappaðir í mauk með sykri og smjöri (mjög gott að nota matvinnsluvél).
Hveiti, matarsóda, salti og hnetum blandað saman og hrært saman við og að
síðustu er slegnum eggjunum blandað saman við. Hellt í smurt og pappírsklætt
springform, meðalstórt, og bakað í um 45 mínútur, eða þar til kakan er
svampkennd í miðju og farin að losna frá börmum formsins. Látin kólna í
forminu nokkra stund og síðan hvolft á grind.