Maltesers-bitar

 

250 g suðusúkkulaði

50 g smjör

8 stk. hafrakex

60 sykupúðar (helst í einhverjum fallegum lit)

175 gr Malteserskúlur

 

Súkkulaði og smjör brætt saman og kælt í um 10 mín. Hafrakex er malað frekar gróft. Þegar súkkulaði og smjörblanda er nógu köld þá er kexi, sykurpúðum og maltersers bætt út í. Ef sykurpúðar eru stórir þá er gott að skera þá fyrst í minni bita. Þetta er svo sett í form með smjörpappír

í botni. Þetta er loks sett í kæli. Skerið svo í bita áður en þetta er borið á borð og stráið flórsykri yfir.