Kroppmyntutoppar

3 eggjahvítur

150 g flórsykur

100 g Nóa-kropp

2 stk. Pipp-súkkulaði

Þeytið eggjahvíturnar og setjið flórsykurinn hægt út í. Merjið Nóa_kroppið og brytjið súkkulaðið. Setjið út í eggjablönduna og hrærið varlega saman með sleif. Búið til litla toppa úr marensinum með skeið og setjið á bökunarplötu. Bakið við 150°C í 50 mínútur