250 gr. rjómaostur
1 peli rjómi
½ bolli flórsykur
1-1½ pk. hafrakex Frón
100 gr. brætt smjör
Ofan á kökuna er sett kirsuberjasósa.
Kexið er mulið smátt, bleytt með bræddu smjöri. Ostur, rjómi og flórsykur hrært saman við. Sett í glært form, látið bíða í ísskáp.
Sósan sett ofan á rétt áður en kakan er borin fram.