Heslihnetuterta
250 gr heslihnetur malaðar
7 eggjahvítur 3 óþeyttar og 4 stífþeyttar
200 gr sykur
200 gr núggat mjúkt
ferskir ávextir til skrauts.
Hitið ofn í 60 °C. Blandið saman heslihnetum, sykri og þremur óþeyttum eggjahvítum. Setjið blönduna í ofnfast form og inn í 60°C heitan ofn í 30 mín. Setjið blönduna í skál og látið kólna. Stífþeytið fjórar eggjahvítur og blandið þeim rólega saman við blönduna. Setjið deigið í hátt hringform og bakið í vatnsbaði í 60 mín við 180°C. Mýkið núggatið í vatnsbaði og smyrjið því á kalda kökuna. Setjið síðan skorna kalda ávexti í miðjuna ákökunni.