Frekar heilsusamleg súkkulaðibitakaka

2 eggjahvítur
100 g sykur
1 tsk vanilluessens
1 krukka eplamauk (barnamatur, 170 grömm)
3/4 tsk matarsódi
75 g súkkulaðidropar
3 msk léttmjólk
225 g hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft

Ofninn hitaður í 175 gráður og meðalstórt tertuform penslað með olíu eða
úðað með ,,non-fat cooking spray" ef því er að skipta. Eggjahvítur, sykur og
vanilluessens sett í skál og þeytt í um 1 mínútu - blandan á að þykkna vel
en ekki verða eins og marens. Eplamauki og natróni blandað saman og síðan
hrært saman við eggjahvítublönduna ásamt súkkulaðidropum og mjólk. Að lokum
er hveiti og lyftidufti blandað saman og hrært saman við deigið með
sleikju - alls ekki hræra of mikið, þá verður kakan seig. Sett í formið og
bakað í 18-20 mínútur, eða þar til kakan er gullinbrún og hefur stífnað í
miðju. Látin kólna smástund í forminu og síðan hvolft á grind og látin kólna
alveg.