Grand ostakaka (af Nóavefnum)

Botn:
200 g suðusúkkulaði (konsum)
50 g smjör
1 pk. Maltabitar (200 g)

Fylling:
400 g rjómaostur
1/2 l rjómi
120 g flórsykur
makkarónukökur
5 matarlímsblöð
Grand Marnier
Trópí appelsínusafi

Myljið Maltabita smátt í matvinnsluvél. Bræðið suðusúkkulaði og smjör í vatnsbaði. Blandið saman og setjið í 24 cm klemmuform sem búið er að fóðra með filmu eða álpappír, smyrjið upp á kanta. Setjið í kæli og látið stífna. Blandið saman örlitlu Grand Marnier og Trópí í skál og bleytið í makkarónunum. Þeytið rjómann og bræðið matarlím í vatnsbaði. Hrærið saman rjómaosti og flórsykri og blandið saman við rjómann og hellið matarlími í afganginn ásamt Grand Marnier að vild. Hellið hluta af fyllingunni í formið setjið makkarónukökurnar á milli og svo afganginn af fyllingunni. Sigtið kakó yfir og skreytið t.d. með berjum.