Epla- og kanilkaka
1 matskeið kanill
2 teskeiðar lyftiduft
1 bolli bráðið smjör
1½ bolli ljósbrúnn sykur
4 stór egg
6 epli, skorin í litla bita
1 bolli flórsykur
1 til 2 teskeiðar vatn
2 ½ bolli hveiti
1 teskeið salt
½ teskeið matarsódi
Hitið ofninn í 175 gráður. Hrærið saman hveiti, kanil, matarsóda, salti og
lyftidufti. Hrærið saman í annarri skál smjör, brúnan sykur og egg. Blandið
þurrefnunum við. Bætið eplabitunum saman við. Bakið í 50 til 60 mínútur. Kælið.
Blandið saman flórsykri og vatni og setjið yfir kökuna